Ertu ungskáld?

Ungskáld Akureyrar 2023.
Ungskáld Akureyrar 2023.

Nú fer hver að verða síðastur til að taka þátt í ritlistakeppnin Ungskálda en síðasti skiladagur til að senda inn texta er 16. nóvember.

Ungskáld er verkefni á Akureyri sem gengur út á að efla ritlist og skapandi hugsun hjá ungu fólki á aldrinum 16-25 ára. Verkefnið hófst árið 2013 og er það eina sinnar tegundar á landinu.

Staðið er fyrir ritlistakeppni þar sem veitt eru peningaverðlaun fyrir efstu þrjú sætin. Engar hömlur eru settar á texta, hvorki varðandi efnistök né lengd. Þeir þurfa þó að vera á íslensku og eigið frumsamið hugverk.

Í framhaldi af ritlistakeppninni verður kaffihúsakvöld Ungskálda haldið á LYST í Lystigarðinum þriðjudagskvöldið 5. desember kl. 20. Kvöldið er ætlað ungu fólki á aldrinum 16-25 ára sem hefur áhuga á ritlist. Frábært tækifæri til að hitta önnur skáld, kynnast verkum þeirra og jafnvel lesa upp sín eigin verk. Veitingar í boði fyrir srkáða gesti.

Fimmtudaginn 7. desember kl. 17 tilkynnir dómnefnd úrslit í ritlistasamkeppni Ungskálda 2023 í Amtsbókasafninu á Akureyri. Öll velkomin.

Allar nánari upplýsingar og skráning á ungskald.is.


Í nefnd Ungskálda eru fulltrúar frá Atvinnu-, markaðs- og menningarteymi Akureyrarbæjar, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Menntaskólanum á Akureyri, Ungmennahúsinu í Rósenborg og Amtbókasafninu.

Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan