Nú hafa um 20% bæjarbúa 18 ára og eldri hlaðið niður Akureyrarappinu og auðkennt sig þar. Appið gefur fólki m.a. kost á að hlaða niður og nota gámakortin í símunum sínum, senda inn ábendingar um ýmislegt sem betur má fara, fylgjast með loftgæðum í bænum í rauntíma, og forvitnast um það helsta sem um er að vera í bænum í gegnum viðburðadagatal Akureyrarbæjar.
Rúmlega 2.700 manns hafa auðkennt sig í appinu sem svarar til 1 af hverjum 6 bæjarbúum yfir 18 ára aldri og fleiri en 100 ábendingar hafa borist og verið teknar til skoðunar af starfsfólki bæjarins. Nú er ætlunin að gera enn betur og því er kallað eftir hugmyndum bæjarbúa um hugsanlegar viðbætur í appið, nýja virkni sem mætti verða til að bæta þjónustuna og auðvelda fólki aðgengi að þjónustu og upplýsingum Akureyrarbæjar. Einkum er leitað eftir hugmyndum að virkni sem ekki er aðgengileg íbúum með öðrum hætti og kemur þar ýmislegt til greina.
Hugmyndum verður safnað saman á vefnum „Okkar Akureyri“. Í kjölfarið verða þær metnar og forgangsraðað út frá helstu markmiðum verkefnisins. Nú er um að gera að leggja höfuðið í bleyti og skrá raunhæfar hugmyndir sem gætu orðið að veruleika í nánustu framtíð. Smelltu hér.
Opið verður fyrir hugmyndasöfnun til og með 20. október nk.
Fólk er hvatt til að skrá sig inn á samráðssvæðið á „Okkar Akureyri“ til að fá upplýsingar um stöðu málsins og afdrif hugmynda.
Hægt er að nálgast appið í Appstore og Google Play undir nafninu "Akureyrarbær"