Íbúaapp Akureyrarbæjar er aðgengilegt fyrir bæði Apple og Android stýrikerfi.
Nýjasta uppfærslan af íbúaappi Akureyrarbæjar er komin í loftið.
Nú er hægt að greiða fyrir bílastæðasjóð, stöðvunarbrotagjald og biðja um endurupptöku í appinu. Einnig er komin inn tilkynningarvirkni, sem þýðir að íbúar geta hakað við ákveðna málaflokka og fengið tilkynningar í símann.
Í appinu er jafnframt að finna ábendingargátt, sem gefur fólki kost á að senda sveitarfélaginu ábendingu um það sem betur má fara, og rafrænt gámakort, sem kemur í stað klippikortanna. Gömlu pappakortin verða þó áfram í gildi fyrir þau sem það vilja. Hér eru ítarlegar leiðbeiningar um notkun rafræna gámakortsins í appinu.
Íbúaapp Akureyrarbæjar er aðgengilegt fyrir bæði Apple og Android stýrikerfi. iPhone notendur slá inn leitarorðið Akureyrarbær í App Store í símanum sínum en Android notendur finna appið í Play Store.
Ábendingar um virkni appsins má senda í gegnum gáttina í appinu sjálfu eða á heimasíðunni.