Nýjar reglur velferðarsviðs um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra

Á bæjarstjórnarfundi 21. nóvember sl. voru samþykktar nýjar reglur velferðarsviðs Akureyrarbæjar um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra. Á sama tíma voru samþykktar endurskoðaðar reglur um stuðningsfjölskyldur og reglur um skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni auk frístundaþjónustu fyrir sama hóp.

Í reglum um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra er sett umgjörð utan um þá þjónustu sem velferðarsvið og í einhverjum tilfellum fræðslu- og lýðheilsusvið býður upp á. Markmiðið með reglum þessum er að styðja foreldra og forsjáraðila í uppeldihlutverki sínu og þegar börnum er veittur stuðningur skal hafa að leiðarljósi að hann stuðli að félagslegri aðlögun, þroska og farsæld. Börn skulu hafa aðgang að samþættri þjónustu við hæfi, auk þess sem boðið er upp á samþætta þjónustu í þágu farsældar barna þegar þess er þörf.

Framvegis verður ferlið þannig að foreldrar senda fyrst inn umsókn um stuðning við börn og fjölskyldur þeirra í þjónustugáttinni og fá þá viðtal við ráðgjafa sem síðan fyllir út viðeigandi umsóknir með fjölskyldunni.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan