Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 19. nóvember 2013 samþykkt deiliskipulag fyrir Kjarnaskóg og Hamra í samræmi við 3. mgr. 41.
gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagssvæðið afmarkast af mörkum sveitarfélagsins að sunnan, hamrabelti ofan Kjarnaskógar og Hamra að vestan, óbyggðu svæði að
norðan og Eyjafjarðarbraut að austan. Í deiliskipulaginu er verið að koma á formlegu skipulagi fyrir útivistarsvæðið, tjaldsvæðið
og útilífsmiðstöð skáta.
Tillagan var auglýst frá 25. september til 6. nóvember 2013. Alls bárust 6 athugasemdir og hefur verið tekið tillit til þeirra.
Deiliskipulagið hefur verið sent Skipulagsstofnun og tekur það gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.
Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu bæjarstjórnar, geta snúið sér til skipulagsdeildar,
Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð.
27. nóvember 2013
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar