Deiliskipulag Naustahverfis 3. áfanga

Um þessar mundir er unnið að gerð deiliskipulags fyrir Naustahverfi 3. áfanga. Tillagan er gerð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og lög um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.

Bæjarstjórn Akureyrar hefur lagt fram til kynningar lýsingu á skipulagsverkefninu. Þar koma m.a. fram hvaða áherslur eru ráðandi við gerð deiliskipulagsins og upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu. Þá er fyrirhuguðu skipulagsferli lýst og hvernig kynningu og samráði verður háttað gagnvart íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum.

Skipulagslýsingin liggur frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og komið með ábendingar. Skipulagslýsinguna er einnig að finna hér fyrir neðan:

Skipulagslýsing fyrir Naustahverfi 3. áfanga

Þeir sem vilja koma ábendingum til skipulagsnefndar er bent á að senda þær til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð, 600 Akureyri eða í tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram. Ábendingar þurfa að berast fyrir 23. janúar 2013.

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan