Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, tillögu að breytingu að deiliskipulagi miðbæjar Akureyrar - austurhluta, samþykkt í bæjarstjórn 2. febrúar 2010.
Skipulagssvæðið afmarkast að sunnan af Kaupvangsstræti, að norðan af Strandgötu, að vestan af Hafnarstræti og að austan af ströndinni og lóð Hofs. Sett er fram stefna um einkenni byggðar, landnotkun, samgöngur, tengsl við sjóinn og mótun gatna, gönguleiðir og torgsvæði. Gert er ráð fyrir byggingum á bílastæðum milli Skipagötu og Glerárgötu, fjölgun íbúða og atvinnuhúsnæðis. Bílastæðum verður komið fyrir í bílakjöllurum. Tengsl miðbæjarins og Pollsins eru endurvakin með síki sem liggja mun þvert á helstu miðbæjargötur og myndað meðfram því almenningsrými sem liggur frá sjó og að Hafnarstræti.
Samhliða eru gerðar breytingar á mörkum þriggja gildandi deiliskipulagsáætlana í miðbænum sem auglýstar eru með ofangreindri breytingartillögu.
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 5. febrúar til 19. mars 2010, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðunni: www.akureyri.is/midbaer.
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 föstudaginn 19. mars 2010. Athugasemdum má skila á tvennan hátt: skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð, eða í tölvupósti á annabraga@akureyri.is. Nauðsynlegt er að nafn, kennitala og heimilisfang sendanda komi fram í tölvupóstinum til að athugasemdir verði teknar gildar. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.
5. febrúar 2010
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar