Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 6. desember 2011 samþykkt deiliskipulag fyrir Dalsbraut, frá
Þingvallastræti að miðhúsabraut. Svæðið sem deiliskipulagið nær til er götustæði Dalsbrautar frá Þingvallastræti
í norðri að Miðhúsabraut í suðri ásamt nokkrum fullbyggðum íbúðasvæðum sem liggja að götustæðinu.
Tillagan var auglýst 28. september með athugasemdafresti til 10. nóvember 2011. Auglýsingar birtust í Lögbirtingarblaðinu,
Fréttablaðinu og Dagskránni. Skipulagsgögn voru aðgengileg í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð og á
heimasíðu Akureyrarkaupstaðar: www.akureyri.is/skipulagsdeild. Athugasemdum sem bárust á auglýstum athugasemdartíma var svarað á fundi
skipulagsnefndar þann 30. nóvember 2011. Vegna athugasemdanna voru gerðar breytingar á áður auglýstum gögnum. Helstu breytingarnar
eru eftirfarandi:
- Fallið er frá því að gera nýja aðkomu að Lundarskóla norðan við Heiðarlund 8. Vegna þessa hliðrast
gönguljós og stígatengingar um 40 m til norðurs.
- Gerðar eru lagfæringar á útfærslu núverandi vegtengingar frá Dalsbraut að Lundarskóla.
- Sett er kvöð um girðingu á þeirri hlið æfingasvæðis KA sem snýr að Dalsbraut.
- Bætt er við skilmálum um hámarkshæð bygginga á þegar byggðum lóðum.
- Breytt er áhrifum núverandi ástands (núll kosts) á umhverfisþáttinn samgöngur úr neikvæðum í
óveruleg í umhverfisskýrslu deiliskipulagsins.
Hér fyrir neðan eru þau gögn sem samþykkt hafa verið
Greinargerð
Deiliskipulag norðurhluti
Deiliskipulag suðurhluti
Skýringarmynd
Húsakönnun
Hljóðskýrsla
Frekari upplýsingar er hægt að nálgast á skipulagsdeild Akureyrarkaupstaðar. Hverjum þeim sem telur á rétt sinn hallað með
samþykkt þessari er heimilt að skjóta máli sínu til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála með kæru sbr. 5. mgr 52. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010.
F.h. Akureyrarkaupstaðar
Arnar Birgir Ólafsson, verkefnastjóri skipulagsmála