Dagrún Matthíasdóttir er bæjarlistamaður Akureyrar 2021

Dagrún Matthíasdóttir, bæjarlistamaður Akureyrar 2021.
Dagrún Matthíasdóttir, bæjarlistamaður Akureyrar 2021.

Vegna samkomubanns var Vorkoman send út á Facebooksíðu Akureyrarbæjar og hægt er að skoða upptökuna hér að neðan.

Dagrún er fædd árið 1971. Hún lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti árið 1992, stundaði nám við Myndlistaskólann á Akureyri 2003-2006, og háskólanám við HA 2006-2010. Þá hefur hún sótt námskeið í myndlist og verið í vinnudvöl víða, meðal annars í Flórens á Ítalíu. Einnig hefur hún sinnt kennslu í myndlist í þónokkur ár, þar sem hún hefur meðal annars kennt grunnskólabörnum að gera bæði dúkristur og einþrykk með góðum árangri.

Heiðursviðurkenningar hlutu Ásta Sigurðardóttir menningar- og félagsmálafrömuður, Helgi Vilberg Helgason skólastjóri Myndlistarskólans á Akureyri og Kristján Pétur Sigurðsson listamaður.

Viðurkenningu Húsverndarsjóðs hlutu eigendur hússins að Lækjargötu 4, bræðurnir Hallbjörn og Hjalti Karlssynir og fjölskyldur þeirra.

Byggingarlistaverðlaun voru veitt fyrir hús Votta Jehóva við Sjafnarstíg sem finnski arkitektinn Risto Karjalainen hannaði.

Loks voru Snorra Björnssyni kennara við VMA og sjónvarpsstöðinni N4 veittar jafnréttisviðurkenning Akureyrarbæjar. Hvatningarverðlaun jafnréttismála hlaut hlaðvarpsþátturinn Bannað að dæma í umsjón Heiðdísar Austfjörð og Halldórs Kristins Harðarsonar.

Allar nánari upplýsingar og lengri útgáfur af ræðum er að finna í skjölunum að neðan.

 

Vorkoma Akureyrarstofu 2021 á Youtube HÉR 

 

Upphafsávarp Þórgnýs Dýrfjörð forstöðumanns Akureyrarstofu.

Bæjarlistamaðurinn Dagrún Matthíasdóttir. 

Heiðursviðurkenning: Ásta Sigurðardóttir.

Heiðursviðurkenning: Helgi Vilberg Helgason.

Heiðursviðurkenning: Kristján Pétur Sigurðsson.

Húsverndarsjóður: Lækjargata 4.

Byggingarlistaverðlaun: Hús Votta Jehóva.

Jafnréttisviðurkenningar og hvatningarverðlaun: Snorri Björnsson, N4 og Bannað að dæma.

Verkefni sem Menningarsjóður Akureyrar styrkir árið 2021

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan