Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar samþykkti þann 31. mars 2020 tillögu að breytingu á Svæðisskipulagi Eyjafjarðar 2012-2024 vegna flutningslína raforku.
Breytt stefna Svæðisskipulags Eyjafjarðar 2012-2024 um flutningslínur raforku er árétting þeirrar stefnu, sem sett var fram í svæðisskipulaginu á sínum tíma en nokkuð ítarlegri. Breytingin á við Blöndulínu 3 og Hólasandslínu 3.
Málsmeðferð var í samræmi við 23., 24. og 25. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir sem bárust gáfu ekki tilefni til breytinga á tillögunni en minni háttar lagfæringar voru gerðar, sem ekki eiga við meginatriði hennar.
Gerð er grein fyrir athugasemdum og afgreiðslu þeirra í fundargerð svæðisskipulagsnefndar 31. mars 2020. Hér má finna skipulagstillöguna sjálfa og umhverfisskýrsluna.
Eftirtalin sveitarfélög, sem aðilar eru að svæðisskipulaginu, hafa samþykkt tillögu svæðisskipulagsnefndar:
- Grýtubakkahreppur 6. apríl 2020
- Svalbarðsstrandarhreppur 16. apríl 2020
- Eyjafjarðarsveit 16. apríl 2020
- Dalvíkurbyggð 21. apríl 2020
- Akureyrarbær 21. apríl 2020
- Hörgársveit 30. apríl 2020
- Fjallabyggð 20. maí 2020