Breytingar á þjónustu Glerárlaugar

Við gerð fjárhagsáætlunar Akureyarbæjar fyrir árið 2022 var ákveðið að gera breytingar á þjónustu Glerárlaugar sem hafa í för með sér að dregið er úr afgreiðslutíma fyrir almenning.

Unnið er að nákvæmri útfærslu breytinganna, en reiknað er með að þær taki gildi á vordögum. 

Eftir breytingar verður Glerárlaug opin fyrir almenning í einn og hálfan klukkutíma, kl. 18:00-19:30, þá virku daga sem kennsla og skipulagðar æfingar eru í lauginni. Ekki verður opið um helgar, yfir sumarið, hátíðir eða lögbundna frídaga.

Breytingarnar hafa ekki áhrif á kennslu og æfingar sem verða eftir sem áður umfangsmikill hluti af starfsemi og þjónustu í Glerárlaug.

Í fyrri umræðu bæjarstjórnar um fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir því að Glerárlaug yrði lokað alfarið fyrir almenning í hagræðingarskyni en á milli umræðna var sú ákvörðun milduð. Bæjarstjórn telur að með þessu sé verið að koma til móts við þann hóp sem sækir Glerárlaug reglulega sér til heilsubótar og ánægju.

Nánar verður upplýst um breytta þjónustu Glerárlaugar þegar nær dregur. 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan