Blómaval opnar verslun í Glerhúsinu svokallaða við Hafnarstræti á Akureyri fyrri hluta næsta mánaðar. Hjalti Finnsson hefur verið ráðinn verslunarstjóri en alls verða starfsmenn 8-10 talsins. Að auki mun einkaaðili sjá um veitingarekstur í turni hússins. Undanfarnar vikur hefur verið unnið að endurbótum húsnæðisins.
Á árunum 1996-1999 var rekin verslun í Glerhúsinu undir nafni Blómavals en verslunin átti þá hlut í félagi sem stóð að þeim rekstri. Hjalti sagði að á Akureyri yrði rekin garðmiðstöð, líkt og fyrir sunnan, þar sem boðið verður upp á afskorin blóm, pottaplöntur, mold, áburð, garðyrkjuverkfæri, útiplöntur og margt fleira. Einnig verður Blómaval umboðsaðili fyrir Tekk vöruhús í Reykjavík, sem selur húsgögn og gjafavörur.