Bandarískir háskólanemar heimsóttu Grímsey

Hópurinn við Orbis et Globus listaverkið í Grímsey.
Hópurinn við Orbis et Globus listaverkið í Grímsey.

Á hverri önn koma nemendur frá háskólum víðsvegar um Bandaríkin til Íslands til að stunda nám um loftslagsbreytingar og norðurslóðir, sem hluti af námi School for International Training (SIT Iceland). Í síðustu viku dvaldi hópurinn á Akureyri, þar sem nemendur fræddust meðal annars um endurnýjanlega orku, og heimsóttu heimskautsbauginn í Grímsey.

Á meðan á dvölinni í Grímsey stóð stóð fengu nemendur einstaka innsýn í lífið á mörkum norðurslóða og er þessi heimsókn ætíð einn af hápunktum námsins. Í Grímsey hitti hópurinn íbúa eyjarinnar sem tóku á móti þeim af hlýju og deildu reynslu sinni og sögum.

Nemendur munu síðan vinna rannsóknarverkefni á því sviði sem þau hafa áhuga á, allt frá líffræði og verkfræði til stefnumótunar og menntunar, og veita heimsóknirnar til Akureyrar og Grímseyjar innblástur fyrir þau verkefni.

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan