Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 25 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, tillögu að deiliskipulagsbreytingu í Hrísey, samþykkta í bæjarstjórn þann 19. maí 2009. Um er að ræða deiliskipulagsbreytingu skv. 1. mgr. 26. gr. sömu laga.
Skipulagssvæðið nær til Austurvegar, Eyjabyggðar og Búðartanga í Hrísey. Með breytingunni eru húsnúmer við Eyjabyggð lagfærð, byggingarreitum breytt og lóðarmörkum og skilmálum breytt fyrir Búðartanga 2A.
Tillöguuppdráttur og greinargerð mun liggja frammi í Eyjabúðinni, Norðurvegi 9 í Hrísey og þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. frá 20. maí til 1. júlí 2009, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarbæjar: http://www.akureyri.is undir: Stjórnkerfið/Skipulag og lausar lóðir.
Austurvegur, Eyjabyggð og Búðartangi - deiliskipulagsuppdráttur
Austurvegur, Eyjabyggð og Búðartangi - greinargerð
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 1. júlí 2009 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.
20. maí 2009
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar