Aukin áhersla á sóttvarnir í leik- og grunnskólum

Skólalóð Glerárskóla á góðum degi.
Skólalóð Glerárskóla á góðum degi.

Ástæða þykir til að skerpa enn frekar á sóttvörnum í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar í ljósi þess hve hratt smitum hefur fjölgað á landinu að undanförnu. Í gær, 1. október, greindust 37 ný innanlandssmit og var aðeins um þriðjungur í sóttkví.

Samkvæmt nýjustu upplýsingum á Covid.is eru 605 í einangrun og nýgengi smita á hverja 100 þúsund íbúa nálgast 150. Spálíkan Háskóla Íslands gerir ráð fyrir að heildarfjöldi smita í þessari bylgju faraldursins geti orðið allt að 1.650. 

Sökum þessa hefur Karl Frímannsson, sviðsstjóri fræðslusviðs, beint eftirfarandi tilmælum til starfsfólks leik- og grunnskóla Akureyrarbæjar:

  • Stöðugt verði minnt á eins metra regluna. 
  • Reglulega skuli minnt á persónulegar sóttvarnir og aukin þrif. 
  • Allir fullorðnir sem í skólana koma spritti hendur við komu og noti grímu verði ekki hægt að virða fjarlægðarmörk. 
  • Foreldrar leikskólabarna komi eingöngu í forstofur. 
  • Skólaþjónustan mun halda áfram þannig að hver starfsmaður fari eingöngu í einn skóla á dag, ekki er grímuskylda í vinnu með börnum, fundir verði fjarfundir þar sem því verður við komið og grímuskylda er á fundum ef rými eru lítil og ekki hægt að virða fjarlægðarmörk. 
  • Mælst er til þess að starfsfólk fari ekki á landsvæði þar sem nýgengi smita er hátt nema brýna nauðsyn beri til. 
  • Útleigu á grunnskólum verði tímabundið hætt. Ákvörðunin verður endurskoðuð 23. október. 
Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan