Nr. 1079/2013 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað - Eyrarlandsholt, Austursíða og Hlíðarendi.

 

Breyting á deiliskipulagi – Eyrarlandsholt, reitur 3, Melateigur 11.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 19. nóvember 2013 í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Melateig 11.
Breytingin felur í sér stækkun byggingarreits fyrir viðbyggingu.

Breyting á deiliskipulagi – Austursíða, athafnasvæði.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 19. nóvember 2013 í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Austursíðu, athafna­svæði.
Breytingin felur í sér breytingu á lóð 2 við Austursíðu þar sem fyrirkomulag bílastæða breytist, athafnasvæði fyrir þungaflutninga stækkar auk breytingar á umferðarleiðum innan lóðar.

Breyting á deiliskipulagi – frístundabyggð og verslunar- og þjónustusvæði að Hlíðarenda, 1. áfangi.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 19. nóvember 2013 í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir frístundabyggð.
Breytingin felur í sér að nýrri lóð er bætt við ofan við innkeyrslu á svæðið, fyrir spenni­stöð, skýli fyrir skíðafólk og skilti.

Deiliskipulagstillögurnar hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 20. nóvember 2013,

Margrét Mazmanian Róbertsdóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.

B-deild - Útgáfud.: 4. desember 2013

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan