Samkvæmt 4. gr. laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr. 49/1997 með síðari breytingum, hefur ráðherra
þann 27. ágúst 2013 staðfest hættumat vegna snjóflóða fyrir skíðasvæðið í Hlíðarfjalli á
Akureyri.
Hættumatið hefur verið auglýst og kynnt í samræmi við 4. gr. laga nr. 49/1997, sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 636/2009 um hættumat
vegna snjóflóða á skíðasvæðum.
Hættumatið öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 27. ágúst 2013.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Stefán Thors
B-deild - Útgáfud.: 11. september 2013