Nr. 909/2013 AUGLÝSING um breytingu á aðalskipulagi Akureyrarkaupstaðar 2005-2018, lega og skilgreining reið- og göngustíga, afmörkun hafnarsvæða og opinna svæða og íbúðarsvæði fyrir stakt íbúðarhús.

Skipulagsstofnun staðfesti þann 1. október 2013 breytingu á aðalskipulagi Akureyrar­kaupstaðar 2005-2018, sem samþykkt var í bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar þann 22. ágúst 2013. Í breytingunni felst breytt lega og skilgreining reiðleiða og göngustíga. Jafnframt er breytt afmörkun hafnarsvæða og opinna svæða til sérstakra nota án heimilda til landfyllinga. Einnig er sett inn íbúðarsvæði fyrir stakt hús, að Hesjuvöllum, og nýtt tákn fyrir óorðnar landfyllingar. Bæjarstjórn breytti eftir auglýsingu legu reiðleiðar við Miðhúsaklappir og féll frá tengingu og reiðleið eftir Sörlagötu. Bæjarstjórn auglýsti niðurstöðu sína þann 25. september 2013. Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Skipulagsstofnun, 1. október 2013.

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.

Ottó Björgvin Óskarsson.

B-deild - Útgáfud.: 16. október 2013    

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan