Nr. 736/2013 Auglýsing um breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, verslunar- og þjónustu-, athafna- og iðnaðarsvæði og breytt lega gatnamóta, Miðhúsabraut - Súluvegur.

Skipulagsstofnun staðfesti þann 18. júlí 2013 breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, sem samþykkt var í bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar þann 4. júlí 2013. Í breytingunni felst að óbyggðu svæði er breytt í 0,26 ha verslunar- og þjónustusvæði 3.12.8 V undir áfyllingarstöð fyrir metan og í 2,3 ha athafnasvæði 3.12.5 A auk þess er skilgreint iðnaðarsvæði undir veitumannvirki 2.51.8 I. Gatnamót Þingvallarstrætis og Miðhúsabrautar eru færð til austurs og afmörkun svæðis á náttúruminjaskrá 1.61.5 N aðlöguð nýju athafnasvæði. Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Skipulagsstofnun, 18. júlí 2013.

Hafdís Hafliðadóttir.

Guðrún Halla Gunnarsdóttir.

B-deild - Útgáfud.: 1. ágúst 2013

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan