Allir í?leikhús

Blaa_gullidNorðurorka, Rarik, Menningarhúsið Hof, Borgarleikhúsið, Leikfélag Akureyrar, Flugfélag Íslands og KEA hafa tekið höndum saman ásamt leikhópnum Opið út og boðið öllum 4. og 5. bekkingum á Akureyri og nágrenni að koma á trúðasýninguna Bláa gullið. Alls koma um 800 börn á sýningarnar sem verða fjórar dagana 25. til 28. janúar í Hofi.

Aðeins verður ein sýning í almennri sölu á leikritið miðvikudaginn 26. janúar kl. 17.00 og hefur verið ákveðið að bjóða 2 fyrir 1 á þá sýningu. Verkið höfðar til allra á aldrinum 6-99 ára. Athugið að einungis er hægt að bóka tilboðið í miðasölu Hofs í síma 450 1000. Miðasalan er opin virka daga frá kl. 13-19.

Bláa gullið var frumsýnt í Borgarleikhúsinu 10. október sl. Sýningin hefur það að markmiði að áhorfendur sjái vatn í nýju ljósi; upplifi margbreytileika, mikilvægi og töfra bláa gullsins. Þrír túðar leiða áhorfendur um sögusvið vatnsins sem hefur verið á stöðugu ferðalagi um jörðina í árþúsundir; undir og á yfirborði hennar, í öllu lífverum og um himingeiminn. Trúðarnir varpa fram ýmsum spurningum um eðli og uppruna vatnsins á fræðandi en trúðslegan hátt! Ragnhildur Gísladóttir sér um hljóðmynd og Gjörningaklúbburinn (www.ilc.is) sér um leikmynd og búninga.

Opið út, sjálfstætt starfandi leikhús, með Charlotte Böving í broddi fylkingar setur sýninguna upp í samvinnu við Borgarleikhúsið. Leikstjóri er Charlotte Böving og leikarar eru María Pálsdóttir, Sólveig Guðmundsdóttir og Víkingur Kristjánsson. Höfundar eru Charlotte Böving og leikhópurinn. Tónlist er eftir Ragnhildi Gísladóttur.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan