ÁLFkonur opna sýningu í Lystigarðinum

Um helgina opnaði áhugaljósmyndarafélag fyrir konur á Akureyri og í Eyjafirði, ÁLFkonur, ljósmyndasýninguna "Sumar og sól" í Lystigarðinum. Sýningin stendur fram á haust og er opin á opnunartíma Lystigarðsins. Þetta er tíunda samsýning hópsins sem starfað hefur saman frá árinu 2010. 

Eftirfarandi ÁLFkonur sýna að þessu sinni: Agnes Heiða Skúladóttir, Berglind H. Helgadóttir, Díana Bryndís, Ester Guðbjörnsdóttir, Freydís Heiðarsdóttir, Gunnlaug Friðriksdóttir, Guðrún Kristín Valgeirsdóttir, Halla S. Gunnlaugsdóttir, Helga Gunnlaugsdóttir, Helga Haraldsdóttir, Hrefna Harðardóttir, Lilja Guðmundsdóttir, Linda Ólafsdóttir, Kristjana Agnarsdóttir og Margrét Elfa Jónsdóttir.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan