Boðað er til kvennaverkfalls þriðjudaginn 24. október undir yfirskriftinni „Kallarðu þetta jafnrétti?“ Viðbúið er að ákveðin þjónusta á vegum Akureyrarbæjar verði skert eða þyngri í vöfum þennan dag.
Á fjórða tug samtaka kvenna, hinsegin fólks og launafólks standa að verkfallinu og munu konur og kvár þá leggja niður störf sé þess nokkur kostur. Akureyrarbær styður að sjálfsögðu jafnréttisbaráttu kvenna og kynsegin fólks og tekur undir þau meginsjónarmið kvennaverkfalls að hefðbundin kvennastörf skuli metin að verðleikum og til jafns við störf karla. Sveitarfélagið mun því leita allra leiða til að konur og kvár geti lagt niður störf og tekið þátt í skipulagðri dagskrá en á Akureyri verður útifundur á Ráðhústorgi kl. 11 árdegis. Konur og kvár eru hvött til að mæta á fundinn og sýna samstöðu í baráttu fyrir launajafnfrétti kynjanna.
Ekki verður litið á fjarvistir kvenna og kvár vegna þátttöku í skipulagðri dagskrá, með samþykki stjórnanda, sem óréttmætar né verður dregið af launum vegna þeirra.
Hluti af starfsemi sveitarfélaga er með þeim hætti að ekki er mögulegt að leggja hana alfarið niður og kappkostað verður að tryggja þjónustu á öllum sviðum svo velferð, öryggi og heilsu fólks verði á engan hátt stofnað í hættu.
Þennan dag verður haustfrí í grunnskólum bæjarins en opið verður í leikskólum. Með samhentu átaki getum við stuðlað að því að sem flestar konur og kvár geti tekið þátt í kvennaverkfallinu og því er þeim tilmælum beint til foreldra að hafa börn sín heima eða með sér í vinnuna ef það er hægt með góðu móti. Það auðveldar þeim konum og kvárum sem starfa í leikskólum að taka þátt í dagskrá dagsins. Gjald fyrir leikskólavist verður endurgreitt fyrir þennan dag til þeirra sem ekki nýta þjónustuna.
Sundlaugar Akureyrarbæjar verða opnar en þó má gera ráð fyrir skertri þjónustu.
Umfram allt, sýnum samstöðu með konum og kvárum og gerum allt sem í okkar valdi stendur til að sem flest geti tekið þátt í deginum.