Mynd af vef ÍBA.
Íþróttabandalag Akureyrar fagnar 80 ára afmæli sínu 20. desember næstkomandi. Af því tilefni verður slegið upp sannkallaðri íþróttahátíð í Boganum á Akureyri á morgun, laugardaginn 7.desember.
Hátíðin verður sett með stuttu ávarpi formanns ÍBA klukkan 13:00 en hátíðin sjálf stendur til 17:00.
Innan vébanda ÍBA eru tuttugu íþróttafélög og munu flest þeirra vera á staðnum og kynna starfsemi sína og leyfa gestum og gangandi að prufa hinar ýmsu íþróttagreinar. Auk þess mæta góðir gestir í Bogann sem munu halda uppi fjörinu og boðið verður upp á léttar veitingar fyrir gesti.
Þennan sama dag á Íþróttafélagið Akur, sem er eitt af aðildarfélögum ÍBA, einnig stórafmæli en félagið fagnar 50 ára afmæli sínu og verður því fagnað sérstaklega á hátíðinni.
Nánari upplýsingar á facebook síðu ÍBA.
Öll velkomin og að sjálfsögðu er frítt inn!
