Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 21 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005 – 2018 samþykkta í bæjarstjórn 17. mars 2009.
Með breytingunni er afmarkað 2,6 ha iðnaðarsvæði, 3.11.3 I, undir malbikunarstöð á Glerárdal. Svæði á náttúruminjaskrá, 1.61.5 N, sem tekur til Glerárgils minnkar við breytinguna um 1 ha. Jafnframt er þéttbýlismörkum Akureyrarbæjar breytt norðan Glerár.
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 1. apríl til 13. maí 2009 svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is undir: Stjórnkerfið/Skipulag og lausar lóðir.
Aðalskipulag Akureyrar 2005-2018 - Malbikunarstöð á Glerárdal
Samhliða þessari auglýsingu er auglýst tillaga að deiliskipulagi Malbikunarstöðvar Akureyrar skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 þar sem skilgreind er lóð og byggingarreitir hennar. Athugasemdafrestur hennar er frá 1. apríl til 13. maí 2009.
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 13. maí 2009 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.
1. apríl 2009
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar