Mynd af vef Glerárskóla.
Hin árlega söngkeppni, Glerárvision, fór fram í Glerárskóla á dögunum en viðburðurinn er einn af hápunktum skólastarfsins ár hvert.
Nemendur í 9. AÝG báru sigur úr bítum með lagið Life is a Highway. 10. KJ var í öðru sæti með lagið Wannaby og 8. GHS í þriðja sæti með lagið Texas Hold‘em.
Dómnefndin, sem skipuð var Helgu Halldórsdóttur, fyrrum deildarstjóra, og tónlistarmönnunum Bjarka Guðmundssyni og Guðmundi Jónassyni, fór lofsamlegum orðum um framlag keppenda og listrænan metnað krakkanna.
Glerárvision hefur verið fastur punktur í félagslífi Glerárskóla síðustu 20 árin og hefur veitt ótal nemendum tækifæri til að blómstra. Meðal þeirra sem hafa tekið þátt í keppninni er Jón Jósep Snæbjörnsson, betur þekktur sem Jónsi í Svörtum fötum.