600.000 kr. styrkur

 

Jafnréttisnefnd Akureyrar hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til verkefna sem hafa það markmið að jafna stöðu kynjanna. Heildarstyrkupphæð er kr. 600.000. Tilgangurinn með styrkveitingunni er að hvetja einstaklinga, félagasamtök, stofnanir og fyrirtæki á Akureyri til virks jafnréttisstarfs. Jafnframt er í boði aðstoð og ráðgjöf vegna þessara verkefna.

 

Umsækjendur eru beðnir að skila inn umsóknum fyrir 24. mars nk. með greinargóðri áætlun um verkefnið sem inniheldur upplýsingar um þætti eins og eðli verkefnis, þátttakendafjölda, verkefnisstjóra/stýru og verk- tíma- og kostnaðaráætlun.  Nánari upplýsingar veitir Elín Antonsdóttir í síma 462-1000/460-1023.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan