60 ára og eldri velkomin í bogfimi

Bogfimiæfingar í Kaldbaksgötu hafa gengið vel undanfarnar vikur en milli tíu og 12 einstaklingar hafa verið að mæta reglulega.

Sumir þeirra hafa náð býsna góðum tökum á íþróttinni eftir aðeins rúman mánuð af æfingum.

Æfingarnar hófust í janúar og fara fram á mánudögum kl. 11:00 í Kaldbaksgötu 2, undir stjórn Íþróttafélagsins Akurs fyrir verkefnið Virk efri ár. Öll 60 ára og eldri eru velkomnir til að mæta og prófa.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan