Fræðsla um kynbundið ofbeldi
Þriðjudaginn 29. mars nk. verður starfsfólki Akureyrarbæjar boðið upp á fræðslu um kynbundið ofbeldi. Í samræmi við Aðgerðaáætlun Akureyrarbæjar gegn kynbundnu ofbeldi og ofbeldi gegn börnum er boðið upp á fræðslu til starfsfólks um einkenni, áhættu, greiningu, orsakir og afleiðingar kynbundins ofbeldis, þar á meðal mansals og vændis og hvernig bregðast skuli við ef slík mál koma upp. Fræðslan fer fram í Rósenborg í kennslustofu á 3. hæð frá kl. 14-16. Skráning fer fram á starfsmannavefnum http://www.eg.akureyri.is/.
23.03.2011 - 12:01
Lestrar 368