Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með:
- Tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005 – 2018 skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felur m.a. í sér að íbúðarsvæði nr. 1.42.1 Íb og svæði fyrir þjónustustofnanir nr. 1.42.2 S stækka.
Ný götutenging inná íbúðarsvæðið verður frá Borgarbraut.
Tillaga að breyttu aðalskipulagi - uppdráttur
- Tillögu að breytingu á deiliskipulagi Giljahverfis skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felur m.a. í sér stækkun á lóð Giljaskóla og nýja íbúðarlóð vestan skólans með aðkomu
frá nýju hringtorgi á gatnamótum Borgarbrautar og Bugðusíðu.
Tillaga að breyttu deiliskipulagi Giljahverfis - uppdráttur
Umhverfisskýrsla vegna hringtorgs á Borgarbraut
Hljóðskýrsla vegna umferðar á Borgarbraut og
Bugðusíðu
- Tillögu að breytingu á deiliskipulagi Borgarbrautar - Vestursíðu skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felur m.a. í sér að lóð Vestursíðu 8 minnkar og afmörkun svæðisins verður samræmd deiliskipulagsmörkum
Giljahverfis.
Tillaga að breyttu deiliskipulagi Borgarbrautar - Vestursíðu -
uppdráttur
Tillögurnar falla undir lög um umhverfismat áætlana nr. 105/2006 og fylgja þeim umhverfisskýrslur. Tillöguuppdrættir ásamt
greinargerðum og umhverfisskýrslum mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð og hjá Skipulagsstofnun,
frá 28. nóvember 2012 til 9. janúar 2013 svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillögurnar og gert við þær athugasemdir.
Öll auglýst gögn eru aðgengileg hér að ofan.
Frestur til að gera athugasemdir við tillögurnar rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 9. janúar 2013 og skal athugasemdum skilað skriflega til
skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang
sendanda kemur fram. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillögurnar innan þessa frests telst vera þeim samþykkur.
28. nóvember 2012
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar