Tillaga að breytingu á deiliskipulagi vegna Akstursíþrótta- og skotsvæðis

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 5. nóvember 2013 samþykkt að auglýsa breytingu á deiliskipulagi,  skv. 1. mgr.  41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breyting er m.a. gerð á skipulagsmörkum vegna stækkunar lóða KKA og Skotfélags Akureyrar, og stækkar því svæðið að Hliðarfjallsvegi til norðurs og að fjallskilagirðingu til vesturs.

Tillöguuppdrátt ásamt greinargerð er hægt að skoða hér að neðan og mun einnig liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir.

uppdráttur og greinargerð

Tillagan fellur undir lög um mat umhverfismat áætlana nr 105/2006 og fylgir henni umhverfisskýrsla.

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 27. desember 2013 og skal athugasemdum skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.


13. nóvember 2013
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan