Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Akureyrarflugvallar - Lokið

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagsbreytingu fyrir Akureyrarflugvöll skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, ásamt umhverfisskýrslu skv. 7. gr. laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana.

Tillagan gerir m.a. ráð fyrir stækkun flugstöðvarbyggingarinnar, nýju flughlaði og breytingu á byggingarreit og lóðamörkum fyrir vöruskemmur. Einnig verða gerðar breytingar á flugbraut og minniháttar stækkun á landfyllingum.

Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð og hjá Skipulagsstofnun, frá 1. september til 13. október 2010, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarkaupstaðar: www.akureyri.is undir: Stjórnkerfið / Skipulags- og byggingarmál / Auglýstar skipulagstillögur.

Akureyrarflugvöllur - greinargerð, tillaga að breyttu skipulagi

Akureyrarflugvöllur - deiliskipulagsuppdráttur, tillaga að breyttu skipulagi

Akureyrarflugvöllur - deiliskipulagsuppdráttur, gildandi skipulag fyrir breytingu

Samhliða þessari auglýsingu er auglýst tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005 ? 2018.

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út miðvikudaginn 13. október 2010 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

                                                  1. september 2010
                                                  Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan