Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 4. júlí 2013 samþykkt að auglýsa breytingu á
Aðalskipulagi Akureyrar 2005 – 2018, skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu.
Breyting felst í því að frístundabyggðarsvæði í Kjarna er stækkað á kostnað
íbúasvæðis í Naustahverfi, svæði fyrir frístundabyggð er fellt út, tjaldsvæði að Hömrum er stækkað og
vegtenging að tjaldsvæðinu á Hömrum er felld út.
Tillagan fellur undir lög um umhverfismat áætlana nr. 105/2006 og fylgir henni umhverfisskýrsla. Hér að neðan er
hægt er að skoða tillöguuppdrátt ásamt greinargerð og umhverfisskýrslu sem einnig mun liggja frammi í þjónustuanddyri
Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 1. hæð og hjá Skipulagsstofnun, frá 14. ágúst til 25. september 2013 svo að þeir sem þess
óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir.
Tillöguupdráttur
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 25. september 2013 og skal athugasemdum
skilað skriflega til skipulagsdeildar Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð eða með tölvupósti (skipulagsdeild@akureyri.is) þar sem nafn,
kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.
14. ágúst 2013
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar