SVÆÐISSKIPULAG EYJAFJARÐAR 2012 – 2024

Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar auglýsir hér með tillögu að Svæðisskipulagi Eyjafjarðar 2012 – 2024.  Sveitarstjórnir allra þeirra sveitarfélaga sem aðild eiga að skipulagstillögunni hafa samþykkt hana til auglýsingar, en sveitarfélögin eru þessi:

Grýtubakkahreppur

Svalbarðsstrandarhreppur

Akureyri

Eyjafjarðarsveit

Hörgársveit

Dalvíkurbyggð

Fjallabyggð

 

Eftirtaldir efnisþættir eru teknir til umfjöllunar í skipulagstillögunni:

a)      Almenn stefna um byggðaþróun

b)     Samgöngur:

  • Vegamál (jarðgöng)
  • Hafnamál (vöruhafnir)
  • Flugmál (Akureyrar­flugvöllur)

c)      Iðnaðarsvæði

d)     Stefna um nýtingu landbúnaðarlands

e)      Efnistökusvæði

f)       Vatnsverndarsvæði

g)      Meðhöndlun úrgangs

h)     Strandsvæði Eyjafjarðar, flokkun.

i)        Veitukerfi: Flutningslínur raforku

 

Skipulagstillagan, sem auglýst er með vísan til 24. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, mun liggja frammi á skrifstofum fyrrnefndra sveitarfélaga og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík, frá og með 28. júní 2013 til og með 23. ágúst 2013. Á sama tíma verður tillagan einnig aðgengileg á vef hvers aðildarsveitarfélags.

Svæðisskipulag Eyjafjarðar - tillaga

Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefst kostur á að gera athugasemdir við tillöguna áður en athugasemdafresturinn rennur út eða fyrir 23. ágúst 2013.

 

Athugasemdum skal skila í skriflegu formi til: 

Teiknistofu arkitekta, Gylfa Guðjónssonar og félaga ehf.,

Kaupangi við Mýrarveg,

 601 Akureyri.

  

Eyjafjarðarsveit  27. júní 2013.

 

Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan