Síðuhverfi, leiksvæði við Brekkusíðu. Tillaga að deiliskipulagsbreytingu.

Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 25 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, tillögu að deiliskipulagsbreytingu á opnu svæði við Brekkusíðu, samþykkta í bæjarstjórn þann 21. október 2008.

Um er að ræða deiliskipulagsbreytingu skv. 1. mgr. 26. gr. sömu laga. Svæðið sem breytingum tekur afmarkast af lóðamörkum við Búðasíðu, Borgarsíðu og Brekkusíðu. Gert er ráð fyrir 710 m2 leiksvæði nyrst á svæðinu með leiktækjum fyrir börn á leikskólaaldri og í fyrstu bekkjum grunnskóla.

Síðuhverfi, leiksvæði við Brekkusíðu. Tillaga að deiliskipulagsbreytingu - Uppdráttur.

Tillöguuppdráttur og greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. frá 29. október til 10. desember 2008, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarbæjar: http://www.akureyri.is undir: Stjórnkerfið/Skipulag og lausar lóðir.

Frestur til að gera athugasemdir er til og með miðvikudeginum 10. desember 2008 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.

29. október 2008

Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar.



Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan