Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar auglýsir hér með skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagi Sandgerðisbótar, samþykkta í bæjarstjórn 17. mars 2009.
Deiliskipulagssvæðið nær til Sandgerðisbótar á Akureyri. M.a. er gert. ráð fyrir nýrri lóð fyrir verbúð og aðstaðan bætt fyrir smábáta með flotbryggjum, löndunarbryggju og landfyllingu við innsiglinguna.
Tillöguuppdráttur ásamt greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, frá 25. mars til 6. maí 2009, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is undir: Stjórnkerfið/Skipulag og lausar lóðir.
Sandgerðisbót - skipulagsuppdráttur
Samhliða þessari auglýsingu er auglýst breyting á aðalskipulagi Akureyrar 2005 – 2018, skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, þar sem gerðar eru minniháttar breytingar á landfyllingum og á afmörkun landnotkunarreita í Sandgerðisbót. Athugasemdafrestur hennar er frá 25. mars til 6. maí 2009.
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rennur út kl. 16:00 miðvikudaginn 6. maí 2009 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.
25. mars 2009
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar