Nr. 934/2012 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Brekatún 2 og Höepfnersbryggja

Breyting á deiliskipulagi – Naustahverfi, 2. áfangi, Brekatún 2. Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 16. október 2012 í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Naustahverfi, 2. áfanga. Breytingin felur í sér að á lóð nr. 2 við Brekatún verður heimilt að reisa 9 hæða fjölbýlishús með 23 íbúðum, byggingarreitur 1. hæðar stækkar.

Nýtt deiliskipulag – Höepfnersbryggja – Siglingaklúbburinn Nökkvi.

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 4. september 2012 í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulag fyrir Höepfnersbryggju – Siglingaklúbbinn Nökkva. Deiliskipulagið felur m.a. í sér að gert er ráð fyrir skemmtibátahöfn, byggingum fyrir klúbbhús og kaffistofu, strandsvæði og bílastæðum. Með auglýsingu þessari fellur úr gildi eldra deiliskipulag fyrir svæðið, Höepfnersbryggja – athafnasvæði Siglingaklúbbsins Nökkva sem tók gildi 10. september 2002, ásamt síðari breytingum.

Deiliskipulagstillögurnar hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 22. október 2012,

Anna Bragadóttir,

verkefnastjóri skipulagsmála.

B-deild - Útgáfud.: 5. nóvember 2012

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan