Breyting á deiliskipulagi, Fosshlíð-Mánahlíð, Barmahlíð, Sunnuhlíð 11

NR. 898/2011 AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL Í AKUREYRARKAUPSTAÐ

Skipulagsnefnd Akureyrarkaupstaðar hefur þann 14. september 2011 í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Sunnuhlíð 11. Breytingin felur í sér að byggingarreitur lóðarinnar stækkar til norðurs um 0,35 m vegna fyrirhugaðrar viðbyggingar. Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 19. september 2011,

Arnar Birgir Ólafsson, verkefnastjóri skipulagsmála.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan