Nr. 893/2012 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Gildistaka deiliskipulags Innbæjarins, Borgarbrautar - Vestursíðu og deiliskipulagsbreyting Giljahverfis

Deiliskipulag Innbæjarins.

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar samþykkti 18. september 2012 nýtt deiliskipulag fyrir Innbæinn í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið felur m.a. í sér að byggingarreitur og nýtingarhlutfall er skilgreint á öllum lóðum auk nýrra lóða.

Með auglýsingu þessari fellur úr gildi deiliskipulag Innbæjarins og Fjörunnar frá 1986, ásamt síðari breytingum. Einnig fellur úr gildi syðsti hluti deiliskipulags miðbæjarins frá 1981.

Deiliskipulag Borgarbrautar – Vestursíðu og deiliskipulagsbreyting Giljahverfis.

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar samþykkti 18. september 2012 nýtt deiliskipulag fyrir Vestursíðu – Borgarbraut og breytingu á afmörkun deiliskipulags Giljahverfis í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagssvæðið afmarkast af Vestursíðu í austri, Bröttusíðu í norðri, Bugðusíðu í suðri og af núverandi og fyrirhugaðri Borgarbraut í vestri. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir lengingu Borgar­brautar að Bröttusíðu, hljóðmönum og byggingarreitum fyrir bílgeymslur við Vestursíðu.

Með auglýsingu þessari fellur úr gildi eldra deiliskipulag á svæðinu fyrir Vestursíðu 10-38 frá 1989 og Vestursíðu 1-8 frá 1991.

Samhliða er gerð breyting á deiliskipulagi Giljahverfis og skipulagsmörk samræmd.

Deiliskipulagstillögurnar hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 16. október 2012,

Anna Bragadóttir,

verkefnastjóri skipulagsmála.

B-deild - Útgáfud.: 30. október 2012

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan