Bæjarráð Akureyrarkaupstaðar hefur þann 29. júlí 2010 í samræmi við 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir hafnarsvæði sunnan Glerár. Breytingin felst í að nýtingarhlutfall á lóð nr. 5 við Norðurtanga, hækkar úr 0,35 í 0,50.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Akureyrarkaupstaðar, 23. ágúst 2010,
Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.
B-deild - Útgáfud.: 6. september 2010