Nr. 361/2013 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Súluvegur 11 og Sjávaragata 2-4

Breyting á deiliskipulagi hesthúsahverfisins í Breiðholti – Súluvegur 11.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 9. apríl 2013 í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir hesthúsahverfið í Breiðholti.
Breytingin felur m.a. í sér að á lóð nr. 11 við Súluveg eru afmarkaðir byggingarreitir annars vegar utan um núverandi miðlunartank hitaveitu og hins vegar undir hreinsistöð fyrir hauggas vegna metanvinnslu.

Breyting á deiliskipulagi hafnarsvæða sunnan Glerár – suðurhluti – svæði 19.5.

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 9. apríl 2013 í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir hafnarsvæði sunnan Glerár.
Breytingin felur m.a. í sér stækkun á byggingarreit á svæði 19.5. Lóðin fær heitið Sjávargata 2-4.

Deiliskipulagstillögurnar hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 10. apríl 2013,

Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.

B-deild - Útgáfud.: 24. apríl 2013

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan