Nr. 332/2012. Auglýsing um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Hafnarsvæði Oddeyrartanga, aðalskipulagsbreyting.

Skipulagsstofnun staðfesti þann 23. mars 2012 breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, sem samþykkt var í bæjarstjórn Akureyrar 21. febrúar 2012. Niðurstaða bæjarstjórnar var birt 8. mars 2012.
Breytingin felst í að hafnarsvæði á suðvesturhluta Oddeyrartanga er stækkað óverulega á kostnað óbyggðs svæðis.
Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Skipulagsstofnun, 23. mars 2012.

Stefán Thors.

B-deild - Útgáfud.: 12. apríl 2012

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan