Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 19. janúar 2010 í samræmi við 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir hafnarsvæði sunnan Glerár. Breytingin felur í sér að á lóðum nr. 1, 3 og 5 við Norðurtanga eru skilgreindir byggingarreitir.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Akureyrarkaupstaðar, 16. mars 2010.
Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.
B-deild - Útgáfud.: 17. mars 2010