Breyting á deiliskipulagi Giljahverfis – Giljaskóli og Borgarbraut.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 5.
febrúar 2013, í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Giljahverfi – Giljaskóla og
Borgarbraut.
Breytingin felur m.a. í sér stækkun á lóð Giljaskóla og nýja íbúðarlóð vestan skólans með aðkomu
frá nýju hringtorgi á gatnamótum Borgarbrautar og Bugðusíðu.
Breyting á deiliskipulagi Borgarbrautar – Vestursíðu.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 5.
febrúar 2013, í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Borgarbraut – Vestursíðu.
Breytingin felur m.a. í sér að lóð Vestursíðu 8 minnkar og afmörkun svæðisins er samræmd deiliskipulagsmörkum Giljahverfis.
Deiliskipulagstillögurnar hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi.
F.h. Akureyrarkaupstaðar, 11. mars 2013,
Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.
B-deild - Útgáfud.: 11. mars 2013