Nr. 168/2010 AUGLÝSING um breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, kirkjugarður á Naustahöfða.

Samkvæmt 19. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 hefur ráðherra þann 12. febrúar 2010 staðfest breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 frá 15. desember 2006.
Breytingin felst í því að opið svæði til sérstakra nota 2.611.O fyrir kirkjugarð stækkar til suðurs og vesturs um alls 1,4 ha og verður 10,4 ha að stærð á kostnað óbyggðs svæðis. Gert er ráð fyrir bílastæði innan svæðisins.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hefur málsmeðferð verið í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 og Skipulagsstofnun yfirfarið erindið og sent ráðherra til staðfestingar.
Breytingin öðlast þegar gildi.

Umhverfisráðuneytinu, 12. febrúar 2010.

F. h. r.

Magnús Jóhannesson.

B-deild - Útgáfud.: 26. febrúar 2010

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan