Nr. 153/2013 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Aðalstræti 4 og Urðargil 22

Breyting á deiliskipulagi Innbæjarins – Aðalstræti 4.

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 5. febrúar 2013 í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Aðalstræti 4. Breytingin felur í sér að á lóð nr. 4 við Aðalstræti er heimilt að vera með 4 íbúðir. Jafnmörg bílastæði verða innan lóðarinnar.

Breyting á deiliskipulagi Giljahverfis – Urðargil 22. Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 5. febrúar 2013 í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Urðargil 22. Breytingin felur í sér að lóð nr. 22 við Urðargil stækkar til vesturs.

Deiliskipulagstillögurnar hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 6. febrúar 2013,

Anna Bragadóttir,

verkefnastjóri skipulagsmála.

B-deild - Útgáfud.: 21. febrúar 2013

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan