Nr. 1116/2010 Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi, Torfunefs, Strandgata

Breyting á deiliskipulagi Torfunefs, Strandgata.
Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 22. nóvember 2011 í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Torfunef, Strandgötu, Akureyri.

Breytingin felur í sér minniháttar lengingu á grjótvarnargarði við Torfunef, en það er breyting sem varðar Akureyrarkaupstað og umráðanda svæðisins sem er Hafnasamlag Norðurlands.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

 

F.h. Akureyrarkaupstaðar,

Arnar Birgir Ólafsson, verkefnastjóri skipulagsmála.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan