Nr. 1092/2012 AUGLÝSING um skipulagsmál í Akureyrarkaupstað. Deiliskipulag Stórholts og Lyngholts og deiliskipulagsbreyting fyrir KA svæðið

Breyting á deiliskipulagi KA svæðisins, Lundarskóla og Lundarsels.

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 4. desember 2012 í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir KA svæðið, Lundarskóla og Lundarsel. Skipulagssvæðið sem breytingum tekur nær til íþróttasvæðis KA við Dalsbraut og lóðar Lundarskóla. Gert er ráð fyrir að knattspyrnuvöllur sunnan KA heimilisins verði lagður gervigrasi en völlurinn vestan KA heimilisins verði grasvöllur. Göngustígur verður lagður við lóðarmörk Heiðarlunds 8. Gerður er nýr byggingareitur fyrir færanlegar kennslustofur á lóð Lundarskóla ætlaðar leikskólanum Lundarseli.

Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

Deiliskipulag Stórholts og Lyngholts.

Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 16. október 2012 í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkt deiliskipulag fyrir Stórholt og Lyngholt. Skipulagssvæðið afmarkast af Hörgárbraut í suðri, Undirhlíð í vestri, Krossanesbraut í norðri og liggur að Glerá og Óseyri í austri. Innan svæðisins eru m.a. skilgreindir byggingareitir og nýtingarhlutfall á öllum lóðum.

Deiliskipulagstillagan hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

F.h. Akureyrarkaupstaðar, 13. desember 2012,

Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.

B-deild - Útgáfud.: 17. desember 2012

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan