Nr. 1014/2013 AUGLÝSING um breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, Kjarni, Hamrar og Gata sólarinnar.

Skipulagsstofnun staðfesti þann 4. nóvember 2013 breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018, sem samþykkt var í sveitarstjórn Akureyrarkaupstaðar þann 15. október 2013. Niðurstaða sveitarstjórnar var auglýst 23. október 2013. Breytingin varðar Kjarna, Hamra og Götu sólarinnar og felur í sér að svæði fyrir frístundabyggð (3.21.16-F) er stækkað til vesturs, svæði fyrir frístundabyggð (3.21.17-F) fellur út og opið svæði til sérstakra nota, tjaldsvæðið að Hömrum (3.41.4-O) stækkar til norðurs. Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Skipulagsstofnun, 4. nóvember 2013.

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.

Ottó Björgvin Óskarsson.

B-deild - Útgáfud.: 18. nóvember 2013    

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan