Bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar hefur þann 4. júlí 2013 samþykkt breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018,
og deiliskipulag vegna Athafna-, verslunar- og þjónustusvæði við Súluveg - Miðhúsabraut.
Breytingin felur í sér að nýir landnotkunarreitir eru afmarkaðir við gatnamót Miðhúsabrautar og Súluvegar
fyrir athafnar-, verslunar- og þjónustusvæði.
Tillögur að breytingum voru auglýstar samhliða frá 10. maí til 21. júní 2013. Engar athugasemdir bárust vegna
aðalskipulagsbreytingarinnar. Bæjarstjórn hefur afgreitt athugasemdir sem bárust vegna deiliskipulagsins og sent þeim sem gerðu athugasemdir umsögn sína.
Athugasemdirnar gáfu ekki tilefni til breytinga á tillöguninni.
Aðalskipulagsbreytingin hefur verið send Skipulagsstofnun sem sér um lokaafgreiðslu erindisins.
Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu bæjarstjórnar, geta snúið sér
til skipulagsdeildar, Akureyrarkaupstaðar, Geislagötu 9, 3. hæð.
17. júlí 2013
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar