Bæjarstjórn Akureyrar auglýsir hér með skv. 25 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, tillögu að deiliskipulagsbreytingu á lóð Mjólkursamsölunnar við Súluveg, samþykkta í bæjarstjórn þann 21. október 2008. Um er að ræða deiliskipulagsbreytingu skv. 1. mgr. 26. gr. sömu laga.
Svæðið sem breytingum tekur er lóð Mjólkursamsölunnar. Byggingarreitur fyrir mjólkurmóttökuhús (G) stækkar um 75 m2 og verður 604 m2 og hámarksstærð byggingar innan byggingarreitsins stækkar um 40 m2 og verður 380 m2.
Mjólkursamsalan á Akureyri. Tillaga að deiliskipulagsbreytingu - Uppdráttur.
Tillöguuppdráttur og greinargerð mun liggja frammi í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1. hæð, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. frá 29. október til 10. desember 2008, svo að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig birt á heimasíðu Akureyrarbæjar: http://www.akureyri.is undir: Stjórnkerfið/Skipulag og lausar lóðir.
Frestur til að gera athugasemdir er til og með miðvikudeginum 10. desember 2008 og skal athugasemdum skilað skriflega til Skipulagsdeildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna innan þessa frests telst vera henni samþykkur.
29. október 2008
Skipulagsstjóri Akureyrarkaupstaðar.